lauantaina, helmikuuta 03, 2007

Skype

Ég er búinn að endurnýja Skype aðganginn minn og viðeigandi tækjakost.
Þannig að ef einhver hefur einhverntíman áhuga að spjalla, svona for real... þá er skypenafnið mitt mushroom9777.
Heyrunst!

perjantaina, helmikuuta 02, 2007

Suomessa on puhdas ilma

Það er hláka, snjórinn að bráðna. En það er skammur vermir, á mánudaginn 10 stiga frost á ný og þaðan af bara tölur niðurávið. Það verður "frábært" hálfbráðnaður snjór sem frýs aftur, þessi staður er stundum ekkert svo ósvipaður heimaslóðum.

Í júlí verðum við með tónlistarungmennaskipti hérna í landi kóra og fagura tóna.
Og ég er með í undirbúningnum, mikið gaman að taka þátt án þess að þurfa að halda utan um draslið. Þátttökulöndin eru auk Finnlands og auðvitað Íslands, Eistland, Þýskaland, Pólland og Ítalía.
Svo ég verð að taka ferjuna til Tallinn og læra smá Eistnesku í leiðinni.
Láta Mörtu kenna mér eitthvað á pólsku, Leif smá þýsku og Eddu eitthvað sniðugt á ítölsku.

Í finnskutíma í háskólanum á miðvikudaginn var sessunautur minn dani! Og daginn eftir átta liða úrslitin vorum við ekki alveg sátt. Töluðum held ég meira um handbolta en um það sem við áttuma að vera að gera! Fundum samt skilning hjá hve öðru vegna almenns áhugaleysis og vankunnáttu fólks í Finnlandi á þessari göfugu íþrótt.
En landsliðið okkar er búið að vera frábært, lífgað svo um munar upp á þessar tvær vikur.