perjantaina, tammikuuta 30, 2004

Það er kominn helgi!! Loksins, loksins. Vikan er nú búinn að vera mjög viðburðarlítill. Og það stefnir í eins helgi. Annað hvort fer ég austur á Flúðir ef ég finn far eða ég verð í bænum og þá er nú ekki mikið skipulag nema kannski að kíkja á Gettur betur, efa samt að ég nenni.
Nú nenni ég þessu ekki lengur og ætla heim að gá hvernig eldhúsið mitt lýtur út eftir smiðina!! NÖRD!

keskiviikkona, tammikuuta 21, 2004

Ég frétti að það hefði tekist að setja inn póst (Eins og þið takið eftir). Og er maður þá kominn í hin mennigarþrungna hóp bloggara! Á eftir af fá hjálp við að gera þetta flottara en þetta er þó byrjun.
Dagurinn í dag er búinn að vera ágætur. Kom á réttum tíma í skólan! :-)
Eftir heimavinnutíma var íslenska. Ekkert markvert þaðan nema kennarinn fanst það mjög augljóst að Bjartur hefði gifst ráðskonunni til að þurfa ekki að borga henni laun!!!! Mjög áhugavert.
Annarrs var það merkilegast á þessum venjulega miðvikudegi að Edda fór að proffast í stærðfræði, takk Edda.
Ettir 5 daga á ég svo afmæli. Ég, Dísa, Bryndís og Sigrún erum að reyna að koma á sumarbúðstaðarafmælisferð í febrúar eða mars, semsagt fjórfalt afmæli. Ef einhver les þetta (er ekkert búinn að vera að auglýsa þetta) Þá óska ég viðkomandi alls hins besta.

maanantaina, tammikuuta 19, 2004

Jæja. Afleiðing andvökunætur er (fyrir utan mígreni og 4 skróp) að ég er kominn á blogið og lærði að skrifa í gestabækur :-)
Til að segja e-h. Reif ég mig uppúr þunglyndinu og fór í tónlistarskólan og sendi pakka til Ísafjarðar.

Ef einhver les þetta, þá gæti ég þegið aðstoð við að seta svona linka og drasl !!!!