perjantaina, huhtikuuta 16, 2004

Hæ kæru lesendur

Það er föstudagur og það er frekkar skrítið að vera fara strax aftur í frí. Páskafríið var barasta algjör stemning !!! Meðal annars sló eldingu niður í hús sem ég var í á annan í páskum en ég er búinn að segja það flestum. Ég er svo athyglissjúkur ! Var nú svona frekkar duglegur að læra en kláraði samt ekki helminginn, er svo búinn að vera mjög latur í vikunni, bara hanga. var samt í skólanum til rúmlega níu í gærkvöldi, helvítis angel verkefni eru fáránleg %&$# !!!
Ég er ekki að fatta að það sé föstudagur, veit voða lítið hvað á að gera í kvöld og um helgina. Kannski að fara á fótboltamótið annað kvöld ef einhverjir verða þar. Það er bara búið að taka stemninguna ur því með því að banna áfengi !! :(
Held að ég geti ekki bullað meira í ykkur í bili nema ég er að fá pening eftir helgi, vííííí. skólastyrk upp á 13 þúsund. Jæja reyni að gleyma ykkur.